Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. febrúar 2014

Fjarkennd tölvunámskeið

Starfsmennt-blom-2014Í samvinnu við tölvuskólann Nemandi.is býður Starfsmennt netnámskeið þar sem byrjendum og lengra komnum er kennt á tölvur og ýmis hagnýt forrit. Námskeiðin hafa hlotið frábærar viðtökur.

Öll kennsla fer fram í fjarnámi, með aðferðum sem allir ráða við, undir öruggri leiðsögn og með stuðningi kennara, Bjartmars Kristinssonar.  

Stuðningur er bæði með netpósti og gegnum þjónustusíma nemenda sem er opinn 10-20 alla virka daga.

Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir og er að auki kjörin leið fyrir þá sem ekki geta sótt  námskeið í staðnámi og hentar að geta stundað nám að heiman eða af vinnustað.

Skráning og nánari upplýsingar hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)