24. mars 2014
Ársskýrsla SFR og aðalfundur
Aðalfundur SFR stéttarfélags í almannaþjónustu verður haldinn miðvikudaginn 26. mars kl. 17, að Grettisgötu 89. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem tilkynnt verður um val á trúnaðarmanni ársins og ársskýrslu SFR dreift. Allir félagar velkomnir, boðið verður upp á léttan kvöldverð.
Dagskrá:
- Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári
- Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár.
- Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytingaog breytinga á reglum sjóða.
- Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri kynnt.
- Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
- Kosnir fimm menn í kjörstjórn og jafnmargir til vara.
- Ákveðið árgjald félagsmanna og skipting þess milli sjóða.
- Kosið í stjórn: orlofssjóðs, vinnudeilusjóðs, starfsmenntunarsjóðs og styrktar- og sjúkrasjóðs samkvæmt reglum þeirra.
- Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykktar.
- Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
- Önnur mál.
Fundargerð síðasta aðalfundar má nálgast hér, en sú venja hefur skapast að húner ekki lesin upp á fundinum.
Aðalfundur í streymi - hægt að fylgjast með á netinu
- Til að fylgjast með fundinum á netinu þarf að fara á slóðina straumur.bsrb.is.
- Nota þarf aðgangsorðið bsrb og lykilorðið er sömuleiðis bsrb.
- Þegar inn á síðuna er komið þarf að velja valmöguleikann „live streaming“ vinstra megin á síðunni.