25. apríl 2014
Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir
Í gær sumardaginn fyrsta lauk atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun starfsmanna fyrirtækja í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Kosningaþátttaka var 61,9% og samþykkti mikill meirihluti félagsmanna verkfallsboðunina, eða 65%. Samþykkið tekur til félagsmanna er starfa hjá eftirtöldum stofnunum SFV vegna: Áss, Eirar, Grundar, HNLFÍ, Hrafnistu Hafnarfirði, Hrafnistu Kópavogi, Hrafnistu Reykjavík, Krabbameinsfélagsins, Markar, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilisins, Skjóls, Skógarbæjar, Sunnuhlíðar og öðrum stofnunum innan SFV þar sem félagsmenn SFR starfa.
Framkvæmd verkfallsins verður sem hér segir;
Á tímabilinu frá kl. 08:00 til kl. 16:00, mánudaginn 12. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SFV leggja niður störf.
Á tímabilinu frá kl. 08:00 til kl. 16:00, fimmtudagur 15. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SFV leggja niður störf.
Á tímabilinu frá kl. 00:00 til kl. 24:00, mánudaginn 19. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SVF leggja niður störf.
Kl. 08:00, fimmtudaginn 22. maí 2014 hefst allsherjarverkfall allra félagsmanna SFR hjá SFV sem mun standa þar til annað verður ákveðið.