Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. maí 2014

Verkfall hefst á morgun

Fréttatilkynning frá Sjúkraliðafélagi Íslands og SFR – stéttarfélagi í almannaþjónustu

Verkfall hefst mánudaginn 12. maí kl. 08.00 til 16.00 hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu, sem starfa hjá stofnununum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

 Fyrirtæki og stofnanir innan SFV sem reknar eru fyrir opinbert fé og verkfallið nær til eru: Ás Hveragerði, Dalbær, Eir, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista í Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún og Sunnuhlíð.

Síðustu samningafundir voru föstudaginn 9. maí og sunnudaginn 11. maí, þar sem reynt var til þrautar að ná samningum en án árangurs. 

Meginkröfur eru að félagsmenn sem starfa á stofnunum innan SFV haldi  sambærilegum réttindum og opinberir starfsmenn.  Fram til þessa hafa réttindin verið viðurkennd og  ekki  verið ágreiningur þar um. Einnig er þess krafist að jafnlaunaátakið sem  kvennastéttir innan heilbrigðisstofnanna ríkisins fengu frá 1. mars 2013 komi inn í samningana og verði greitt afturvirkt til félagsmanna SFR og SLFÍ frá 1. mars 2013. 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)