14. maí 2014
SFR og SFV á samningafundi - búast má frekar við verkfalli á morgun
Nú klukkan þrjú hófst samninganefndafundur SFR og SFV hjá Sáttasemjara. Þar ræðst hvort starfsmenn sem starfa hjá fyrirtækjum í SFV fari í verkfall í annað sinn í fyrramálið. Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson sagðist ekki mjög bjartsýnn fyrir fundinn þó auðvitað vonaði hann að þar myndi myndi þokast eitthvað í samkomulagsátt og að ekki þyrfti að koma til verkfalls.En eins og staðan er í dag þá er betra að reikna með að til verkfalls komi og eru trúnaðarmenn SFR og Sjúkraliðafélagsins ásamt öðrum félagsmönnum í verkfallsvörslu í startholunum. Félagsmenn SFR sem starfa hjá fyrirtækjum í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu eru því beðnir um að fylgjast vel með fréttum í kvöld.