26. maí 2014
Hver er réttur lífeyrisþega til inngreiðslna á höfuðstól húsnæðislána?
Aðalfundur LSFR var haldinn 20. mars sl. Á fundinum voru venjubundin aðalfundarstörf. Í stjórn deildarinnar voru kosin Kristrún B. Jónsdóttir, formaður, Haukur Ársælsson, Bjarndís R. Júlíusdóttir, María B. Gunnarsdóttir, Emil L. Guðmundsson, Guðrún María Hjálmsdóttir og Jan Agnar Ingimarsson.
Aðalfundurinn sendi frá eftirfarandi ályktun:
Lífeyrisdeild SFR skorar á ríkisstjórn að tryggja við breytingar á lögum um séreignasparnað og inngreiðslu á höfuðstól húsnæðislána verði gerðar breytingar á lögum um útgreiðslu lífeyris.
Breytingin er að lífeyrisþegum, sem það velja, bjóðist að greiða ákveðinn hluta lífeyris inn á höfuðstól lána. Greiðslan þarf að vera af heildarlífeyri áður en tekinn er skattur af lífeyri. Þannig er jafnræðis gætt milli þeirra sem á vinnumarkaði eru og hinna sem lokið hafa ævistarfi.