Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

28. maí 2014

Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga LSR

Árlega eru haldnir kynningarfundir fyrir virka sjóðfélaga í  A- og B-deild LSR sem og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Sjóðfélagar skrá sig fyrirfram á fundina.
 
3. og 4. júní n.k. mun LSR halda kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.
 
Hægt er að velja um tvær dagsetningar; þann 3. júní eða 4. júní. Fundir eru haldnir bæði að morgni til eða síðdegis: 8:30 – 10:00 eða 16:30 – 18:00.
 
Fundirnir eru haldnir í húsnæði LSR að Engjateigi 11.
 
Nauðsynlegt er að skrá sig með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu.
 
Hægt er að senda spurningar, sem óskað er eftir að svarað verði á fundinum, á netfangið lsr@lsr.is.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)