Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

6. júní 2014

Gönguklúbbur Lífeyrisdeildar SFR á Stokkseyri

LSFR gönguklúbbur Gaman saman (2)

Miðvikudaginn 28. maí sl. var síðasta ganga Gönguklúbbs Lífeyrisdeildar SFR þetta vor. Göngufélagar hittust á vel völdum stöðum í bænum og röðuðu sér í nokkra einkabíla. Klukkan 10 var svo lagt af stað og lá leiðin austur fyrir fjall og þaðan til Stokkseyrar.

Þar var tekið á móti hópnum með kurt og pí af tveimur göngufélögum sem eru svo lánsamir að eiga þar hús við ströndina. Fyrst sýndu þeir okkur húsin sín sem voru ævintýri líkust, svo var farið niður í fjöruna og gengið meðfram fjörukambinum að veitingahúsinu Við fjöruborðið og þaðan eftir götunni tilbaka og áhugaverðir staðir skoðaðir á leiðinni.  Veðrið var gott, sólskin og smágola.

Á leiðarenda beið okkar svo dýrindis kjötsúpa og rabarbaraeftirréttur með ís - og kaffi.  Eftir það var svo fljótlega haldið heimleiðis eftir velheppnaða ferð.

LSFR gönguklúbbur Á pallinum hjá Silju (1)

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)