19. júní 2014
SFR fulltrúar í norrænu tengslaneti
Fulltrúar norðurlandanna í norrænu tengslaneti funduðu í BSRB húsinu í dag. Tengslanetið samanstendur af fulltrúum frá SFR, HK/STAT í Danmörku, ST í Svíþjóð og Starvsmannafelaginu í Færeyjum. Samstarfið hefur staðið yfir nú í rúmt ár en á vettvangi tengslanetanna er meðal annars unnið að málum sem snúa að menntun og aukinni færni starfsmanna, en auk þess er sérstaklega beint sjónum að ungum félagsmönnum og stöðu þeirra gagnvart stéttarfélögum á norðurlöndunum. Farið er yfir sameiginlega drætti í starfi félaganna í þessum málaflokkum og reynt að nýta þekkingu og reynslu hvers annars.
Á myndinni eru þau; Alma Lísa Jóhannsdóttir fra SFR, Bojana Mandic frá ST, Goran Scekic fra YS, Guðrið Joensen fra Starvsmannafelagið og HK/STAT Anders Bojesen, Ingunn Bråten YS, Anna Johannesen Starvsmannafelagið og Guðrún H. Sveinsdóttir frá SFR.