Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

1. júlí 2014

Hópuppsagnir eða hreppaflutningar?

IMG_7276Rétt í þessu lauk fjölmennum fundi starfsmanna Fiskistofu þar sem fyrirhugaður flutningur stofnunarinnar var ræddur. Á fundinn voru mættir fulltrúar þeirra stéttarfélaga sem starfsmenn stofnunarinnar tilheyra. Þungt hljóð var í fólki en meðal umræðuefna voru réttindi fólks til biðlauna, eftirlauna og uppsagnarfrests. Þá voru ástæður ákvörðunarinnar ofarlega í hugum fólks og þær aðferðir sem viðhafðar hafa verið við ákvarðanatökuna. Svo virðist sem ráðherra hafi á fundi með starfsfólki fyrir helgi einna helst gefið upp ástæðuna fyrir flutningunum hátt verð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta þótti renna stoðum undir það sem fram kom í máli Þórarins Eyfjörð framkvæmdastjóra SFR, en hann sagði að eftir fund með fulltrúum ráðuneytisins í morgun hafi hann sannfærst um að engar rannsóknir, upplýsingaöflun né nokkurs konar samvinna um hagsmuni stofnunarinnar hafi legið að baki ákvörðuninni. Hún hafi hreinlega verið pólitísk geðþóttaákvörðun og svo virðist sem enn eigi eftir að finna rökin fyrir henni! Starfsmennirnir voru harðorðir og margir sögðust óttast að þetta væri einungis byrjunin, búast mætti við að það sama gæti hent starfsmenn annarra stofnana.

 

Starfsmannafundur starfsmanna Fiskistofu 1. júlí 2014 ályktar:

Starfsmenn Fiskistofu og stéttarfélag þeirra gagnrýna harðlega ákvörðun um flutning Fiskistofu til Akureyrar. Fyrirhugaður flutningur er íi raun lítið annað en dulbúin hópuppsögn fjölda reynslumikilla starfsmanna stofnunarinnar. Flutningurinn mun ekki einungis kippa fótunum undan starfsmönnum og fjölskyldum þeirra heldur mun einnig öll sú reynsla og þekking sem orðið hefur til hjá stofnuninni frá upphafi, tapast að miklu leyti. Það hafi nú þegar sýnt sig, bæði hér á landi og hjá nágrannaþjóðum okkar, að það tekur mörg ár að byggja slíka þekkingu upp að nýju. Starfsmenn mótmæla þessum gamaldags og harðneskjulegu aðferðum, þar sem fólki er skákað á milli kjördæmi í refskák stjórnmálanna í fálmkenndri viðleitni stjórnvalda til að fjölga störfum á landsbyggðinni. Bent hefur verið á raunhæfari og markvissari leiðir til þess, m.a. með því að staðsetja ný verkefni eða deildir úti á landi svo þær geti vaxið þar frá byrjun. Starfsmenn og stéttarfélög þeirra skora á stjórnvöld að endurskoða þessi áform sín og setja fram heilsteypta framtíðarsýn í þróun opinberrar stjórnsýslu.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)