8. júlí 2014
Framvegis heldur áfram þrátt fyrir brunann
SFR á hlut í Framvegis miðstöð um símenntun, ásamt Sjúkraliðafélagi Íslands, Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og Promennt. Í ljósi atburða síðastliðið sunnudagskvöld vill stjórn og starfsfólk Framvegis koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri:
Við færum slökkviliði og björgunarfólki einlægar þakkir fyrir frábært og óeigingjarnt starf síðast liðinn sólarhring vegna brunans í Skeifunni. Talsvert tjón varð á húsnæði Framvegis en þó mun minna en útlit var fyrir í fyrstu. Við sjáum því fram á að starfsemi Framvegis hefjist samkvæmt áætlun í haust enda eru mörg spennandi námskeið og verkefni framundan.
Allar upplýsingar eru veittar í síma 8616129 á meðan rafmagnslaust er í húsinu. Einnig er hægt að senda okkur fyrirspurn á facebook síðu Framvegis.Skráning á námskeið fer sem áður fram í gegnum vefinn okkar www.framvegis.is.
Kær kveðja, stjórn og starfsfólk Framvegis