Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. október 2014

Stekkjarhóll endurnýjaður

Hús 77 (Copy)Nú hefur verið lokið við að endurbyggja og stækka tvö af fjórum húsum SFR í Stekkjarhólnum í Munaðarnesi. Húsin eru hin glæsilegustu og hefur allt verið endurnýjað með svipuðum hætti og í öðrum húsum SFR á svæðinu. Húsin verða opnuð fyrir útleigu frá og með deginum í dag næstkomandi og fram til loka febrúar, eins og önnur orlofshús SFR. Þessi áfangi endurbyggingar húsa SFR í Munaðarnes er sá næst síðasti og þegar hefur verið hafist handa við að endurbyggja tvö síðustu húsin, sem einnig eru í Stekkjarhóli. Nánari upplýsingar um húsin má finna á bókunarvefnum.

 

 

Húsin eru hin glæsilegustu eins og myndirnar sýna:

Munðarnes vinnumyndir 021 (Copy)

Stofa Stekkjarhól 77 (10) (Copy)

Vinnuferð í Munaðarnes 14. okt 003 (Copy)

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)