14. nóvember 2014
Fræðslufundur fyrir atvinnuleitendur í SFR og St.Rv.
SFR og St.Rv. bjóða atvinnuleitendum innan félaganna á fræðslufund föstudaginn 21. nóvember nk. Sigríður Arnardóttir verður með námskeiðið Að laða til sín það góða. Þá verður kynning frá Fræðslusetrinu Starfsmennt og Ófeigur Sigurðsson rithöfundur kemur og les upp úr bókinni Öræfi.
Dagskrá:
Kl. 13:00-15:00 Að laða til sín það góða – Sigríður Arnardóttir, félags- og fjölmiðlakona
Hvað skiptir mestu máli í lífinu og hverju getum við stjórnað?
Heyrum við og finnum hlutverk okkar í erli dagsins?
Hvernig löðum við að okkur góða strauma og hamingju?
Neikvæða tímabilið.
Að þekkja óskir sínar og senda þær áfram.
Að skapa jarðveg velgengni.
Kl. 15-15:15: 00 Kaffi
Kl. 15:15-15:35 Kynning frá Fræðslusetrinu Starfsmennt - Guðrún Helga Sederholm, náms- og starfsráðgjafi.
Kl. 15:35-16:00 Upplestur - Rithöfundurinn Ófeigur Sigurðsson kemur og les upp úr bókinni Öræfi.