Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

17. nóvember 2014

Til hamingju með daginn kæru félagsmenn

SFR fagnar 75 ára afmæli sínu í dag. Starfsmannafélag ríkisstofnana, eins og félagið hét þar til nafnbreyting var samþykkt á aðalfundi 2004, var stofnað í Alþýðuhúsinu í Reykjavík 17. nóvember árið 1939. Stofnendur voru 142 og störfuðu á rúmlega 20 ríkisstofnunum í bænum. Fyrsti formaður var kjörinn Guðjón B. Baldvinsson, starfsmaður Tryggingastofnunar ríkisins, en hann var á meðal helstu hvatamanna að stofnun félagsins.

Af þessu tilefni munu trúnaðarmenn SFR þinga um kjaramál og leggja línurnar fyrir komandi kjarasamninga.

 

Þeir sem vilja fræðast nánar um sögu SFR er bent á að smella á þennan tengil hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)