Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

18. nóvember 2014

Blað stéttarfélaganna í prentun

32014-Desblað-2014-forsidaBlað stéttarfélaganna mun berast félagsmönnum í vikunni. Í blaðinu er að vanda fjölbreytt efni, s.s. umfjöllun um fullorðinsfræðslu, desemberuppbótina, launamun kynjanna og samanburð launa milli félaga, auk þess sem birt er viðtal við Indriða H. Þorláksson fyrrverandi ríkisskattstjóra um skattapólitík. 

Þar sem þetta er síðasta blaðið sem gefið er út fyrir jól má í blaðinu finna girnilegar uppskriftir sem gætu nýst vel í jólaundirbúningnum. Jólamyndagátan er einnig  á sínum stað auk krossgátunnar.

Við viljum vekja sérstaka athygli á því að í blaðinu er auglýst bæði jólaball félagsins, aðventukvöld og jólaföndur.

Við hvetjum félagsmenn til að nýta þér þessa viðburði hjá okkur og njóta aðventunnar í góðra vina hópi.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)