Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. apríl 2015

Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2015 rennur út í dag!

Lokað verður fyrir umsóknir á netinu á miðnætti í dag 8. apríl. Úthlutað verður á föstudeginum 10. apríl og þá ættu allir að fá svör í tölvupósti hvort sem það er já eða nei.

MIkilvægt er að umsækjendur kíkji í ruslhólfið ef það eru síur á pósthólfunum hjá viðkomandi, því þessi póstur á það til að lenda þar inni. En það er líka alltaf hægt að fara inn á olofsvefinn því þar sem umsóknin er núna myndi þá standa „ógreidd úthlutun“  fyrir þá sem fá úthlutað. Hinir sem ekki fá úthlutað fara sjálfkrafa á biðlista sem er úthlutað af jafnóðum og einhver hættir við úthlutun.

Mjög áríðandi að fólk láti vita strax ef úthlutun hentar því ekki, þá gengur þessi vinna mun hraðar fyrir sig.

Svo má benda á að opnað verður fyrir dagleiguhús 28. april kl 9:00 og þá geta allir bókað eins og í vetrarleigu. Þá verður opnað fyrir tímabilið 29. maí til 31.ágúst í einu lagi á netinu.  Þá er bara valin staður og stund og greitt fyrir jafnóðum. Húsum sem er úthlutað í vikuleigu í sumar eru frá  29. maí til 28. ágúst og af því að þetta stendur svona af sér verður síðasta helgin í ágúst með í dagleigupakkanum þ.e. frá 28.ágúst til 31. ágúst í SFR húsum.  

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)