Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

10. september 2015

Hiti í trúnaðarmönnum vegna stöðunnar í kjarasamningsviðræðum

IMG_0240Afar fjölmennum fundi trúnaðarmannaráðs SFR lauk rétt í þessu, en þar voru kjaramálin og staða mála í samningaviðræðum helsta umfjöllunarefnið. Mikil óánægja og reiði var í félagsmönnum með síðustu viðbrögð samninganefndar ríkisins og var hljóðið í þeim á þann veg að eina lausnin framundan væru aðgerðir. Flestir sögðu það vera andann á sínum vinnustað, fólk væri búið að fá nóg og vildi sanngirni. Þau væru í störfum við hlið þeirra ríkisstarfsmanna sem nýlega hafa fengið mun meiri launahækkanir en SFR félögum væri boðið. Þetta væri með öllu óásættanlegt.

Næstkomandi þriðjudag 15. september kl. 17:00 verður boðið til stórfundar í Háskólabíói og munu trúnaðarmenn sem og félagsmenn allir fjölmenna þar, enda mikill hiti í fólki.

IMG_0223

IMG_0255

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)