Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

10. desember 2015

Jólafundur trúnaðarmannaráðs

Jólafundur trúnaðarmannaráðs SFR var haldinn í gær. Árni Stefán Jónsson formaður fór yfir stöðuna í kjaramálum, en félagið hefur nú lokið við samninga við flesta viðsemjendur. Samningar SFR og Sambandsins eru í atkvæðagreiðslu og í dag hefst kynning á samningi SFR og SFV. Enn er þó ósamið við Fríhöfnina og Matís. Fundurinn í gær var á jólalegum nótum, rithöfundarnir Einar Már Guðmundsson og Auður Jónsdóttir lásu upp úr nýútgefnum bókum sínum og Ingrid Kuhlman fjallaði um núvitund sem undirstöðu lífshamingjunnar. Hún lauk sínu erindi með slökunaræfingu sem féll í afar góðan jarðveg hjá fundargestum sem hafa átt annríkt í kjaraviðræðunum að undanförnu.

IMG_0622

IMG_0619

IMG_0620

20151209_140836

20151209_132027

20151209_151022

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)