Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. apríl 2016

Úthlutun orlofshúsa lokið

Eiðar_verklok_2010_2Úthlutun orlofshúsa í sumar hefur nú farið fram og þeir sem fengu hús hafa til miðnættis 22. apríl til þess að ganga frá greiðslu. Þeir sem sóttu um en fengu ekki úthlutað eru á biðlista sem er úthlutað af jafnóðum og eitthvað losnar. Ef fólk hefur að einhverjum ástæðum ekki fengið bréf um hvort það hafi fengið úthlutun má sjá það inn orlofsvefnum, merkt „ógreidd úthlutun“ þar sem umsóknin var áður.

Þann 27. apríl verður síðan opnað fyrir dagleiguhús og þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.  Þá verð þrír mánuðir settir á netið í einu lagi og geta félagsmenn þá bókað sig sjálfir eins og í vetrarleigu. Hver sólarhringur kostar 5 punkta.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)