31. maí 2016
Fjölmenni í 40 ára afmæli Lífeyrisdeildar SFR
SFR bauð félögum í LSFR til kaffisamsætis í tilefni tímamótanna sem haldið var á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 28. maí. Deildin var stofnuð 27. maí 1976 og stofnfundinn sátu 70-80 manns, en í dag eru rúmlega 1100 félagar í deildinni.
Afmæliskaffið var vel sótt, en um 230 manns mættu og nuta stundarinnar og frábærra veitinga. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, ávarpaði gestina og afhenti Kristrúnu B. Jónsdóttur, formanni LSFR, afmælisgjöf sem var gjafabréf að upphæð 1.000.000 kr. sem lögð verður inn í Símenntunarsjóð LSFR. Þá söng Seljukórinn fyrir gesti og einnig tóku gestir lagið.
Hér má skoða myndir úr afmælisveislunni sem Haraldur Guðjónsson ljósmyndari tók.