28. október 2016
Fundur NSO í Helsinki
Á næsta ári mun SFR halda ráðstefnu NSO (Nordiske Statstjenestemenns Organisasjon) á Íslandi. Formaður og framkvæmdastjóri sitja nú fund í Helsinki þar sem fyrstu skrefin í undirbúningi ráðstefnunnar eru rædd milli systrafélagana í samtökunum. Staðan í kjarasamningum innan hvers lands er einnig til umræðu og önnur mikilvæg mál, sem félögin eru að vinna að hvert í sínu landi.
Aðildarfélög NSO fyrir utan Ísland eru YS Stat frá Noregi, HK Stat frá Danmörku, Starvsmannafelagið frá Færeyjum, Pardia frá Finnland og ST frá Svíþjóð. Árlega er haldin ráðstefna í því landi sem fer með formennskuna, í júní á næsta ári er komið að því að ráðstefnan verði haldin hér á landi.