Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. nóvember 2016

Desemberuppbótin 2016

Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember 2016. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall, sjá nánar í viðkomandi kjarasamningi. Tímavinnufólk á einnig rétt á desemberuppbót. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé. Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót. Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því. 

Fríhöfnin ehf. 82.000 kr.
Isavia ohf. 82.000 kr.
Rarik ohf. 82.000 kr.
Ríkisútvarpið ohf. 82.000 kr.
Reykjavíkurborg og Ás styrktarfélag 90.700 kr.
Ríkið, SFV, SÁÁ, Vinakot og sjálfseignarstofnanir 82.000 kr.
Sveitarfélög 106.250 kr.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)