Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

6. febrúar 2017

Gott að vita námskeið

Vissir þú að það er fullt af spennandi Gott að vita námskeiðum á dagskránni framundan? 

Skráning á Gott að vita námskeiðin hefst miðvikudaginn 8. febrúar kl. 17:00. Athugið að þetta er annar tími en við erum vön að hafa en við viljum með því reyna að koma til móts við fleiri sem mögulega eiga ekki kost á því að sitja við tölvuna kl. 9 að morgni. Því verður nú opnað fyrir skráninguna kl. 17:00 síðdegis á miðvikudag (8. feb). Vakt verður á skrifstofu félagsins ef fólk lendir í vandræðum í síma 525-8344 og einnig hjá Starfsmennt í síma 550-0060 og Framvegis í síma 581-1900.

Allar nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér og í Blaði stéttarfélaganna sem væntanlega er um það bil að detta inn um lúguna hjá félagsmönnum.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)