Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. maí 2017

Breyting á lyklaafhendingu vegna húsa á Akureyri

Frá og með 1. júní nk. verður lyklaafhending vegna húsa á Akureyri til kl. 22:00 á kvöldin alla virka daga en til kl. 20:00 um helgar. Dyrasími hefur verið settur upp sem verður tengdur við síma öryggisvarða. Nýtt símanúmer hjá öryggisvörðum Securitas verður 460-6262. 
Einnig hefur verið settur upp póstkassi vegna skila á lyklum húsanna.

Mikilvægt er að prenta út kvittun rétt áður en lagt er af stað í orlofshús þar sem alltaf er sá möguleiki fyrir hendi að upplýsingar breytist varðandi afhengingu lykla og fleira.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)