26. júní 2017
Vel heppnuð Jónsmessuferð LSFR
Jónsmessuferð Lífeyrisdeildar SFR var farin í síðustu viku og fóru alls um 130 félagar úr deildinni í ferðina. Farið var á þremur rútum og heimsótti hópurinn meðal annars Íslenska bæinn í Gaulverjahreppi, Þjóðveldisbæinn, Hjálparfoss og Gjána. Að lokum var snæddur kvöldverður í Ingólfsskála. Hér má sjá myndir úr ferðinni.