9. janúar 2018
Fyrsti morgunverðarfundurinn um samstarf SFR og St.Rv.
Það var góður andi á fyrsta morgunverðarfundi SFR í röð morgunverðafunda sem haldnir verða næstu vikurnar. Fundirnir eru í framhaldi af stefnufundi með trúnaðamönnum SFR og fulltrúum StRv sem haldinn var í nóvember. Niðurstaða stefnufundarins var að meirihluti fundarmanna telja að félögin ættu að taka næstu skref í umræðuna um sameiningu félaganna.
Morgunverðarfundirnir verða um allt land og með þeim gefst félagsmönnun tækifæri á að taka þátt í umræðunni og koma skoðunum sínum á framfæri.
Félagsmenn SFR sem hafa áhuga á að koma á morgunverðarfund eru hvattir til að hafa samband við skrifstofuna í síma 525-8354 eða á sfr@sfr.is.
Fundirnir eru skráðir í viðburði og þeir næstu verða haldnir á Grettisgötu 89, 1.hæð:
Fimmtudaginn 18.janúar kl. 8.00 – 10.00
Þriðjudaginn 23.janúar kl. 8.00 – 10.00
Alla fundina má finna undir viðburðum hér á síðunni.