Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

1. febrúar 2018

Orlofshús um páska 2018

Umsóknarfrestur vegna úthlutunar orlofshúsa um páska er til 22. febrúar. Dögunum í kringum páska er skipt í þrjú tímabil eins og sjá má hér neðar. Með þessu móti tvöfaldast páskatímabilið og fleiri njóta. 

Sækja þarf um á orlofsvef SFR í gegnum Mínar síður. Veljið ORLOFSVEFUR og síðan UMSÓKNIR. Þar er valið tímabil og staður (eða hús ef það á við). Á vefnum má einnig finna nánari upplýsingar um orlofshúsin sem í boði eru.

Niðurstaða úthlutunar liggur fyrir 23. febrúar. Svar við umsókn berst á það netfang sem skráð er á Mínum síðum. Mjög mikilvægt er að vanda innskráningun til þess að svörin við umsókn berist hratt og vel.

Lífeyrisþegar hafa ekki rétt til þess að sækja um úthlutun þau tímabil sem hér eru tilgreind, en geta eins og aðrir bókað þau hús sem laus eru eftir að úthlutun lýkur.

1. Hefðbundin úthlutun frá mánudegi 26. mars - mánudagsins 2. apríl

 Hús í boði:
Akureyri, Hamratún (1 íbúð m/potti)
Reykjavík, Grandavegur 45
Reykjavik, Sóltún (1 íbúð)
Munaðarnes, Bjarkarás (f/hreyfihamlaða)
Munaðarnes, Bjarkarás (1 hús)
Munaðarnes, Stekkjarhóll (2 hús)
Munaðarnes, Vörðuás (2 hús)
Húsafell (hús nr. 6)
Arnarstapi, Snæfellsnesi (1 hús)
Skorradalur (1 hús)
Vaðnes Grímsnesi (4 hús)
Vörðuás nr 17 (stórt hús)

Verð 26.000 (7 dagar)

2. Helgin fyrir páska og dymbilvika frá föstudegi 23. mars - miðvikudagsins 28. mars

Hús í boði:
Akureyri, Skálatún (1 íbúð)
Akureyri, Kjarnabyggð (1 hús)
Munaðarnes, Bjarkarás (1. hús)
Munaðarnes, Stekkjarhóll (2 hús)
Munaðarnes,Vörðuás (1 hús
Selásar, Borgarbyggð (1 hús)
Húsafell (1 hús)
Vaðnes, Grímsnesi (3 hús)
Hólasetur, Reykholt Biskupstungum (1 hús)
Reykjavík, Grandavegur 42 (2 íbúðir)

Verð 24.000 (5 dagar)

3. Páskahátíðin frá miðvikudegi 28. mars - miðvikudagsins 3. apríl

Hús í boði:
Akureyri, Skálatún (1 íbúð)
Akureyri, Kjarnabyggð (1 hús)
Munaðarnes, Bjarkarás (1 hús)
Munaðarnes, Stekkjarhóll (2 hús)
Munaðarnes, Vörðuás (1 hús)
Selásar, Borgarbyggð (1 hús)
Húsafell (1 hús)
Vaðnes, Grímsnesi (3 hús)
Hólasetur, Reykholt Biskupstungum (1 hús)
Reykjavík, Grandavegur 42 (2 íbúðir)

Verð 26.000 (6 dagar) 

 

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)