Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

1. mars 2018

Skattframtal 2018 - frádráttur á móti styrkjum frá SFR

Nú er búið að opna fyrir skil á skattframtali og því minnum við félagsmenn sem fengu styrk á árinu 2017 að huga að því hvort heimilt sé að færa kostnað til frádráttar.

Styrkir úr starfsmenntunarsjóði og styrktar- og sjúkrasjóði birtast sjálfkrafa á netfamtali þeirra félagsmanna sem fengið hafa slíka styrki. Hægt er að skrá kostnað á móti námsstyrkjum sem tengjast starfi og á móti líkamsræktarstyrkjum. Frádráttur á móti námsstykjum færist í reit 149 á skattframtali og í reit 157 vegna líkamsræktarstyrkja.

Aðrir styrkir styrktar- og sjúkrasjóðs eru skattskyldir.

Í skattmati vegna tekna fyrir árið 2017 er heimilt að færa til frádráttar heilsurækt að hámarki kr. 55.000:

"Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við íþróttaiðkun og aðra heilsurækt að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 55.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikninga fyrir greiðslu á viðkomandi kostnaði. Með kostnaði við íþróttaiðkun og heilsurækt er átt við greiðslu á aðgangi að líkamsræktarstöðvum, sundlaugum og skíðasvæðum, greiðslu á æfingagjöldum í íþróttasali og félagsgjöldum í golfklúbba sem og þátttökugjöld vegna annarrar hreyfingar sem stunduð er með reglubundnum hætti. Einnig fellur hér undir kostnaður við aðra heilsurækt eins og t.d. jóga og annar sambærilegur kostnaður, þ.m.t. kostnaður vegna endurhæfingar."

Sjá nánar um frádrátt á móti styrkjum á vef RSK.

Hægt er að nálgast 2017 leiðbeiningar um skattframtal einstaklinga hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)