Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

23. maí 2018

Fundur með frambjóðendum í Reykjavík

SFR, Efling, VR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar - stærstu stéttarfélögin innan ASÍ og BSRB með starfssvæði í Reykjavík efna til sameiginlegs opins fundar með fulltrúum framboðanna í Reykjavík fimmtudaginn 24. maí kl. 17:00 á Grand hótel Reykjavík, til að ræða um þau brýnu kjara- og húsnæðismál sem brenna á starfsfólki Reykjavíkurborgar og öðru launafólki í borginni.

Áherslumál fundarins eru launa- og húsnæðismál.
 Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bæta launakjör, auka jöfnuð og vinna gegn stéttskiptingu?
 Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bregðast við því óboðlega ástandi sem nú ríkir á leigumarkaði?

Fundurinn er opinn öllum en félögin hvetja félagsmenn sína sérstaklega til að mæta.

Fundurinn verður haldinn á Grand hótel í salnum Hvammi, fimmtudaginn 24. maí kl. 17-19.
Fundarstjórar verða Sigmar Guðmundsson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir.

Fundinum verður streymt á Facebook síðu viðburðarins Láglaunaborgin Reykjavík?


Fundurinn verður textatúlkaður á ensku.


Gos, kaffi og létt snarl í boði.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)