Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

25. maí 2018

SFR hús á Spáni

SFR festi nýlega kaup á húsi á Spáni fyrir félagsmenn sína. Húsið er fimm herbergja parhús sem rúmar allt að 10 manns í gistingu. Það er staðsett í tólf húsa þyrpingu á Torrevieja svæðinu nálægt stöndinni í um hálftíma akstursfjarlægðar frá flugvellinum í Alicante. Sundlaug og fallegt útisvæði tilheyrir húsaþyrpingunni og stutt er í fjölbreyttar verslanir, markaði og veitingastaði í Torrevieja. Ekki er heldur langt í golfvöllinn og aðra afþreyingu.

Verið er að ganga frá húsinu og útleiguverð fyrir vikuna ekki komin á hreint en vonast er til að hægt verði að auglýsa húsið til útleigu og opna fyrir bókanir á vefnum um eða eftir miðjan júní. Það er gaman að segja frá því að félagar okkar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar keypti einnig eign á svipuðum slóðum og voru samningar undirritaðir á sama tíma. Við erum afar stolt af þessari viðbót í orlofsmálum og hvetjum félagsmenn til þess að fylgjast með þegar hún fer í útleigu.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)