Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. október 2018

Breytum ekki konum, breytum samfélaginu! Kvennafrí 24. október frá kl. 14:55

Það styttist í kvennafrídaginn 24. október eða kvennaverkfallsdaginn eins og sumir kjósa að kalla hann. Þann dag verður haldin baráttuhátíð í tilefni þess að 43 ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975, en þann dag lögðu þúsundir íslenskra kvenna niður vinnu tilað draga fram mikilvægi vinnuframlags þeirra til efnahagslífs og samfélags.

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Arnarhóli, kl. 15:30 undir kjörorðinu: Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!

Í ár verður enn og aftur minnt á vinnuframlag kvenna og mikilvægi jafnréttis á vinnumarkaði með sams konar hætti. Við viljum hvetja konur til þess að leggja niður störf kl. 14:55 til þess að safnast saman á baráttufundum. Það eru heildarsamtök launafólks (ASÍ, BHM, BSRB, KÍ) ásamt fjölmargra kvennasamtaka sem standa saman að undirbúningi og framkvæmd dagsins en þetta er í sjötta sinn sem konur ganga út af vinnustöðum á þessum degi.

Margt hefur sannarlega áunnist í jafnréttismálum kynjanna undanfarna áratugi en einnig er margt enn ógert. Eitt af stóru jafnréttismálunum í okkar huga er að leiðrétta kynbundinn launamun en niðurstöður nýrrar launakönnunar SFR sýna að enn mælist kynbundinn launamunur SFR tæp 11%.

Við hvetjum félagsmenn til virkrar þátttöku í viðburðum dagsins í baráttunni fyrir efnahagslegu og félagslegu jafnrétti í íslensku samfélagi.

Við hvetjum þá félagsmenn sem ekki geta tekið þátt í viðburðum dagsins í Reykjavík eða á öðrum þéttbýlisstöðum vegna fjarlægðar og samgangna að láta baráttumál dagsins til sín taka með táknrænum hætti.

 

Í Reykjavík verður samstöðufundur  á Arnarhóli, kl. 15:30 undir kjörorðinu: Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!

 

 

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)