Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

9. nóvember 2018

Sameining að veruleika

Félagsmenn SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar samþykktu sameiningu félaganna í allsherjar atkvæðagreiðslu sem lauk rétt í þessu, en meirihluti beggja félaga samþykkti sameininguna.

Forysta félaganna fagnar þessum úrslitum og þakkar öllum þeim fjölda félagsmanna sem kynntu sér málið og tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Við lítum björtum augum til framtíðar og þeirra tækifæra sem stærra og sterkara stéttarfélag mun gefa okkur. Sameinað félag mun vera betur í stakk búið til þess að mæta verkefnum framtíðarvinnumarkaðarins. Við munum í nýju félagi standa vörð um réttindi og kjör félagsmanna og leitast við að auka þjónustuna. Þetta verða sameiginleg verkefni okkar næstu misserin og munu trúnaðarmenn sem og félagsmenn allir vera virkjaðir í því starfi.

Alls tóku 40,75% félagsmanna SFR þátt í atkvæðagreiðslunni og féllu atkvæði þannig: 57,25% sögðu já en 37,07% sögðu nei, en 5,68% tóku ekki afstöðu.
Hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar féllu atkvæði þannig að 77,02% sögðu já en 17,56% sögðu nei, en 5,42% tóku ekki afstöðu. Alls tóku 27,34% félagsmanna St.Rv. þátt í atkvæðagreiðslunni.


  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)