21. nóvember 2018
Aðventukvöld SFR og St.Rv.
SFR og St.Rv. halda sitt árlega aðventukvöld 22. nóvember að Grettisgötu 89. Við hefjum leikinn kl. 20:00 með upplestri úr nokkrum nýjum bókum úr jólabókaflóðinu. Það eru rithöfundarnir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Þórdís Gísladóttir og Lilja Sigurðardóttir sem koma og lesa upp. Auk þess mun tónlistarmaðurinn geðþekki Svavar Knútur spila nokkur lög fyrir gesti. Boðið verður upp á jólalegar veitingar við kertaljós og notalega stemningu.