Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. desember 2018

Jólafundur trúnaðarmanna

Afar fjölmennur og skemmtilegur jólafundur trúnaðarmanna og fulltrúa SFR og St.Rv var haldinn í gær á Grand hótel. Þar var meðal annars greint frá stöðu mála í vinnunni við sameiningu félaganna. Þann 27. janúar verða haldnir aðalfundir þar sem ný lög verða lögð fyrir en trúnaðarmenn taka meðal annarra þátt í þeirri vinnu. Þá hefur verið blásið til samkeppni um nafn þar sem vegleg verðlaun eru í boði og kviknuðu þó nokkuð margar góðar hugmyndir á fundinum í dag. Þá lásu rithöfundarnir Auður Ava og Hallgrímur Helgason upp úr bókum sínum og nemar úr söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz, þær Ebba Dís og Rakel Rósa sungu nokkur lög. Að lokum voru trunaðarmenn leystir úr með jólagjöf.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)