Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. október 2019

Baráttudagur kvenna!

Sameyki óskar félagsfólki til hamingju með baráttudag kvenna í dag. Í dag eru 44 ár síðan fyrsti kvennabaráttudagurinn var haldinn. Dagurinn sem jafnan er nefndur Kvennafrídagurinn eða Kvennaverkfallið eins og okkur hugnast betur var fyrst haldinn árið 1975 í tilefni af því að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna helgaði árið málefnum kvenna. Um 90% kvenna á Íslandi lögðu niður störfin sín til að sýna fram á mikilvægi kvenna á vinnumarkaði og til að krefjast sömu réttinda og launakjara og karlar.  Það er vel við hæfi að minna að minna á daginn nú þegar Sameyki ásamt öðrum aðildarfélögum BSRB standa nú í löngum og hörðum kjarasamningaviðræðum. En félagar í aðildarfélögum BSRB eru að stórum meirihluta konur og margar þeirra vinna innan heilbrigðis- og umönnunargeirans sem greiðir hvað lægstu launin. Árið 1975 var talið að yfir 25.000 konur hafi komið saman á baráttufundi og íslensk kvenréttindasamtök vöktu athygli innanlands og í erlendum fjölmiðlum. Á þessum degi hefur reglulega verið blásið til fundahalda og baráttuganga, nú síðast í fyrra. Ekki er skipulagður fundur eða ganga í ár utan þess að Kvenréttindafélagin býður til Kvennasögugöngu í Reykjavík. Forysta félagsins og samninganefndir munu hins vegar leggja áherslu á daginn á fundum sínum hjá ríkissáttasemjara í dag.

Myndirnar eru úr safni BSRB frá baráttufundum 24. október, 2016 og 2018.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)