Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

3. mars 2020

Störf undanþágunefnda í undirbúningi

Undirbúningur vegna yfirvofandi verkfalls er í fullum gangi samhliða kjarasamningsviðræðum. Eitt af því sem þarf að huga að eru undanþágunefndir. Störf félagsmanna á undanþágulista eiga einungis að taka til „nauðsynlegustu öryggisgæslu og heilbrigðisþjónustu“ samkvæmt 5. tl. 19. gr. laga nr. 94/1986

Sé verkfall hafið er heimilt að kalla starfsmenn, sem eru í verkfalli, tímabundið til vinnu í þeim tilgangi að afstýra neyðarástandi. Undanþágunefnd ákveður hverjir skulu kvaddir til starfa, en í nefndinni er einn fulltrúi tilnefndur af stéttarfélagi og annar af viðsemjenda. Verið er að ganga frá því hverjir sitja í nefndunum. Tekið verður við umsóknum rafrænt og verður umsóknareyðublað birt þegar nær dregur yfirvofandi verkfalli.

Undanþágunefndir hefja ekki störf fyrr en ljóst er að verkfall brestur á, ennþá eru samningaviðræður í gangi. En verkfall hefst á miðnætti aðfararnótt mánudagsins 9. mars ef ekki semst fyrir þann tíma.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)