Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. mars 2020

Tilboð óskast í sumarhús til brottflutnings - Akrakot

Til sölu er orlofshús til brottflutnings. Húsið er Í Reykjaskógi í Biskupstungum og er svokallað A-hús með lágum veggjum á langhlið og bröttu þaki. Húsið stendur á steyptum súlum og er byggt árið 1982. Það er er 58 fm að gólffleti, við það á palli stendur skýli sem er 8,5 fm.  Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í sama rými. Þá eru tvö svefnherbergi í húsinu ásamt svefnlofti yfir herbergjum. Hluti af húsi er viðbygging en í henni er bað og forstofa. Húsið skal fjarlægt í síðasta lagi 30. apríl næstkomandi og skal kaupandi gera það á sinn kostnað.

Tilboðum skal skila til skrifstofu Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík fyrir kl. 14,00, 3. apríl 2020. Frekari fyrirspurnir skulu sendar á asaclausen@sameyki.is Áskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

 


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)