Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. apríl 2020

Trúnaðarmannaráðsfundur í fjarfundi

Myndin er úr myndasafni félagsins.

Það var heldur óvanalegur fundur hjá trúnaðarmönnum í gær, en fundurinn var haldinn með hjálp fjarfundabúnaðar. Umfjöllunarefni fundarins var meðal annars ástandið á tímum COVID-19. Árni Stefán formaður fjallaði um félagsmálin á þessum nýju og breyttu tímum, en þar kom meðal annars fram að ákveðið hefur verið að fresta Stofnun ársins fram á haust o.fl. Þá flutti Haukur Ingi Jónasson lektor og sálgreinir, erindi um þá hlið  á Covid sem snýr að hinu andlegu. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB fjallaði hins vegar um hlið efnahagsmálanna og sérstaklega þær efnahagsaðgerðir sem gripið hefur verið til vegna Covid-19 gagnvart launafólki og áherslur BSRB í tengslum við það.

Að lokum fóru formennirnir Árni Stefán og Garðar yfir stöðuna í kjarasamningsviðræðum en enn á eftir að ljúka nokkrum samningum hjá Sameyki. Í síðustu viku voru samningar við Isavia samþykktir og síðar í dag kemur í ljós hvort Orkuveitustarfsmann samþykkja sinn samning.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)