Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. maí 2020

BSRB fordæmir misnotkun á úrræðum stjórnvalda

BSRB fordæmir harðlega misnotkun fyrirtækja sem ekki þurfa á aðstoð að halda á úrræðum stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Í ályktun sem stjórn bandalagsins sendi frá sér í morgun er kallað eftir endurgreiðslu frá stöndugum fyrirtækjum sem nýtt hafa úrræðin.

„Úrræðunum er ætlað að bjarga fyrirtækjum sem róa lífróður vegna faraldursins. Þeim er ekki ætlað að koma fyrirtækjum sem lenda ekki í teljandi tekjutapi vegna hans betur út úr tímabundinni niðursveiflu. Fyrirtæki sem hafa efni á að greiða eigendum arð eða kaupa eigin bréf eru augljóslega ekki í þeirri stöðu að þurfa á þessari aðstoð að halda,“ segir meðal annars í ályktun stjórnar BSRB sem send var fjölmiðlum nú eftir hádegið

taka fé frá öðrum samfélagslega mikilvægum verkefnum,“ segir í ályktun stjórnar BSRB.
08. maí 2020 heimsfaraldur, aðgerðir, ályktun
BSRB fordæmir harðlega misnotkun fyrirtækja sem ekki þurfa á aðstoð að halda á úrræðum stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Í ályktun sem stjórn bandalagsins sendi frá sér í morgun er kallað eftir endurgreiðslu frá stöndugum fyrirtækjum sem nýtt hafa úrræðin.

„Úrræðunum er ætlað að bjarga fyrirtækjum sem róa lífróður vegna faraldursins. Þeim er ekki ætlað að koma fyrirtækjum sem lenda ekki í teljandi tekjutapi vegna hans betur út úr tímabundinni niðursveiflu. Fyrirtæki sem hafa efni á að greiða eigendum arð eða kaupa eigin bréf eru augljóslega ekki í þeirri stöðu að þurfa á þessari aðstoð að halda,“ segir meðal annars í ályktun stjórnar BSRB.

Þar eru fyrirtæki sem hafa nýtt sér úrræðin án þess að vera í brýnni þörf hvött til að endurgreiða Vinnumálastofnun tafarlaust og leiðrétta jafnframt laun starfsmanna, hafi þau skerst vegna þessara aðgerða. Þar er jafnframt bent á að Vinnumálastofnun geti farið ofan í saumana á greiðslum til fyrirtækja og krafist endurgreiðslu hafi verið um misnotkun að ræða.

„Gríðarlegir fjármunir úr sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar hafa verið settir í þessar björgunaraðgerðir. Misnotkun á þessum úrræðum jafngildir því að verið sé að taka fé frá öðrum samfélagslega mikilvægum verkefnum. Við það verður ekki unað,“ segir í ályktun stjórnarinnar.

„Það er mikill skilningur á því í samfélaginu að verja þurfi störf með því að bjarga fyrirtækjum sem verða mörg hver fyrir gríðarlegu tekjutapi vegna heimsfaraldursins. Það er hins vegar engin þolinmæði í garð þeirra sem misnota úrræðin. Það er eitt af því sem neytendur ættu að hafa í huga þegar þeir velja við hvaða fyrirtæki þeir ætla að eiga viðskipti í framtíðinni,“ segir þar jafnframt.

Hér má lesa ályktun stjórnar BSRB í heild sinni.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)