Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. maí 2020

Niðurstöðum Stofnunar ársins frestað

Vegna þeirrar sérkennilegu stöðu sem verið hefur undanfarna mánuði þá hefur stjórn Sameykis ákveðið að tilkynna ekki sigurvegara í Stofnun ársins könnuninni fyrr en 14. október. Stofnanir munu fá til sín sínar eigin niðurstöður til að vinna með en ekki samanburðinn við aðra sem þátt tóku og heldur ekki upplýsingar um í hvaða sæti þær lentu. Því verður haldið leyndu til 14, október en þá munum við boða til verðlaunahátíðar eins og venja er og blása til málþings af sama tilefni. Tölur úr happdrættinu verða hins vegar birtar í lok maí.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)