Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. nóvember 2020

Eftir hverju erum við að bíða?

Eftir um það bil sjö vikur eiga Sameyki stéttarfélag, og önnur aðildarfélög BSRB, að hafa innleitt styttri vinnuviku í dagvinnu fyrir félagsmenn sína. Þessari innleiðingu er lokið hjá hluta félagsmanna, og er það vel, á meðan annars staðar er verið að vinna í málinu.

Það getur verið flókið mál fyrir vinnustaði að takast á við og útfæra styttingu vinnuvikunnar þar sem verið er að breyta 40 klukkustunda gamalgróinni vinnuviku í 36 stunda vinnuviku. Stytting vinnuvikunnar krefst endurskipulagningar og þar af leiðandi gæti þurft að endurmeta starfseiningar og/eða vinnubrögð sem hafa verið með ákveðnum formföstum hætti hingað til.

Það gleymist stundum hversu mikilvægt og hollt það er fyrir starfseiningar að skoða og endurmeta vinnubrögð sín með það að markmiði að gera betur, bæði hvað varðar þjónustu, markvissari vinnubrögð, og síðast en ekki síst, til að bæta líðan starfsmanna.

Stytting vinnuvikunnar er ekki einungis lífskjaramál, heldur einnig hreint og klárt jafnréttismál sem hefur mikil samfélagsleg áhrif til lengri tíma litið eins og kemur fram í þeim niðurstöðum sem fengust að loknu tilraunaverkefni ríkis og borgar þar sem vinnutími var styttur á nokkrum vinnustöðum. Á niðurstöðunum sést að vinnutímastyttingin er liður í jafnréttisbaráttunni og snýr að hinni svokölluðu „þriðju vakt” sem sífellt heyrist meira talað um og er sú vakt oftar en ekki eyrnamerkt konum á heimilinu.

Í lokaskýrslu sem gerð var um tilraunaverkefnið á vegum Reykjavíkurborgar segir að viðmælendur úr tilraunaverkefninu hafi upplifað bætta líkamlega og andlega heilsu. Að þeir hafi haft meiri orku til að sinna félagslífi eða stunda líkamsrækt. Svo hafi virst sem karlar tækju meiri þátt í húsverkum og aukna ábyrgð í kjölfar styttingu vinnuvikunnar og væru ánægðir með að geta tekið þátt í hversdagslegum verkefnum barna sinna.

Að loknu áðurnefndu tilraunaverkefni kom einnig fram hjá starfsmönnum á starfsstöðum borgarinnar „að styttri vinnuvika auðveldaði barnafjölskyldum að samræma vinnu og einkalíf, minnkaði álag á heimilum og þá fjölgaði jafnframt samverustundum fjölskyldna.“

Hvað segir þetta okkur? Jú, að við séum að rétta af halla sem lengi hefur þrifist í samfélagsgerðinni okkar og haft neikvæð áhrif á fjölskyldur og jafnréttismál og því löngu tímabært að rétta hann við. Stytting vinnuvikunnar hefur jákvæð áhrif á samband okkar við börnin okkar, maka, fjölskylduna og okkur sjálf - og nú er styttingin bundin í kjarasamninga! Eftir hverju erum við eiginlega að bíða?

Bryndís Theódórsdóttir er stjórnarkona í Sameyki stéttarfélagi í almannaþjónustu.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)