Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. febrúar 2021

Lausnin á atvinnuleysinu

Ólafur Margeirsson, doktor í hagfræði. Ljósmynd: Kjarninn/Bára Hulda Beck

Ólafur Margeirsson, doktor í hagfræði fjallar um í grein sinni í nýjasta blaði Sameykis um atvinnuleysi á Íslandi, atvinnuframboðstryggingu og borgaralaun. Atvinnuframboðstrygging og borgaralaun hafa verið nokkuð í umræðunni hér á landi og aukist í kjölfar COVID-19. Ólafur hefur birt greinar og rætt víða um áhrif atvinnuleysis á samfélög og kosti og galla borgaralauna.

 

Á Meðal efnis í næsta tölublaði Sameykis:

Datt í lukkupottinn – Guðrún Magnea Guðmundsdóttir var heldur betur heppin þegar hún var dregin út í leiknum sem Sameyki efndi til vegna styttingu vinnuvikunnar á Netinu

Baráttan fyrir betri kjörum – Í leiðara blaðsins fjalla formenn Sameykis m.a. um það sem framundan er hjá Sameyki; stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki.

Hengir af sér á greinar trjánna – Viðtal við Elínu Helgu Sankó, heilbrigðisgagnafræðing sem starfar á Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi með starfsstöð á gjörgæsludeild.

Skemmtilegt fólk – Viðtal við Nökkva Elíasson, verkstjóra í flutninga- og rúmaþjónustudeild LSH í Fossvogi.

Alltaf á vaktinni – Viðtal við öryggisvörð á LSH í Fossvogi, Guðmund Ólaf Ingólfsson.

Fræðslustyrkir og nýjar úthlutunarreglur – Nú geta allir félagsmenn Sameykis sótt um starfsmenntunarstyrki og starfsþróunarstyrki að því gefnu að þeir uppfylli lágmarksskilyrði. Grein eftir Jóhönnu Þórdórsdóttur, fræðslustjóra Sameykis.

Gott að vita – Námskeið á vorönn eru á sínum stað í blaðinu.

Rétt fyrir sólarupprás – Baldur Vignir Karlsson, formaður Háskóladeildar Sameykis ritar pisti.

Heldurðu jafnvægi á stafræna hæfnihjólinu? – Guðfinna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Starfsmenntar fjallar í áhugaverðri grein um sjálfspróf, viðmiðunarpróf um stafræna hæfni.

Kæru félagar – Ingibjörg Óskarsdóttir, formaður lífeyrisdeildar Sameykis fer yfir síðasta ár og það sem fram undan er hjá lífeyrisdeildinni.

Vinningshafi krossgátunnar – Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir sem starfar á fréttastofu RÚV vann helgi í orlofshúsi Sameykis.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)