Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

26. maí 2021

Orlofsuppbót árið 2021

Orlofsuppbót sem er greidd samkvæmt flestum kjarasamningum 1. júní ár hvert nemur 52.000 kr. árið 2021

Orlofsuppbót sem er greidd samkvæmt flestum kjarasamningum 1. júní ár hvert nemur 52.000 kr. árið 2021. Í kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga er þó gert ráð fyrir að greiðslan fari fram 1. maí og upphæð í þeim samningum er 51.700 kr. árið 2021.

Ávinnslutímabilið fyrir orlofsuppbót er 12 mánuðir, þ.e. frá 1. maí 2020 til 30. apríl 2021. Starfsmenn sem hafa verið í hlutastarfi eða starfað hluta ársins fá greidda orlofsuppbót í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3ja mánaða (13 vikna) samfellt starf á ofangreindu tímabili fær greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall.

Í flestum samningum gildir að tímavinnustarfsmenn fá fulla orlofsuppbót þegar unnar hafa verið 1504 vinnuskyldustundir á ofangreindu tímabili en ella hlutfallslega.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)