Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. júní 2021

Mikið uppbyggingarstarf hjá Bjargi íbúðafélagi

Stjórn Bjargs íbúðafélags ásamt starfsmönnum kynntu sér uppbygginguna.

Hjá Bjargi íbúðafélagi hefur verið mikið og gott uppbyggingarstarfs síðan það var stofnað af ASÍ og BSRB árið 2016. Stjórn Bjargs fékk leiðsögn Björns Traustasonar framkvæmdastjóra félagsins ásamt starfsmönnum þess um byggingarsvæði félagsins í Reykjavík og á Selfossi í dag og gerður var góður rómur að.

 

Falleg götumynd Hallgerðargata
Byrjað var á að skoða fallegt og skemmtilegt verkefni við nýja götu í Laugarneshverfi, Hallgerðargötu, sem kennd er við sögupersónu íslendingasagna Hallgerði langbrók sem bjó í Laugarnesi. Götumyndin er litrík eins og sögupersónan sjálf. Gætt var að því að húsin væru umhverfisvæn og ódýr í bygginu en án þess að það kæmi niður á gæðum þeirra. Þau er að Norrænni fyrirmynd og passa vel að eldri húsunum í hverfinu. Bjarg íbúðarfélag reisti 80 íbúðir í Hallgerðargötu við Krikjusand í Laugarnesi, allt 2 til 5 herbergja íbúðir í tveggja hæða timburhúsum.

 


Hallgerðargata í Laugarneshverfi


Gengið um í Bátavogi.

Næst lá leið verkalýðsforystunnar inn í Voga þar sem félagið er að reisa á besta stað fyrir ofan smábátahöfnina Snarfara 74 íbúðir númer eitt við Bátavog sem er nafn við hæfi. Frá Bátavogi er útsýnið fallegt upp í gróinn Elliðaárdalinn til suðurs og út með sundunum bláu til vesturs. Áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði afhentar á hausti komanda. Íbúðirnar eru í fjölbreyttum gerðum og stærðum. Allt frá stúdíóíbúðum upp í rúmgóðar 5 herbergja íbúðir. Allar íbúðirnar eru með góðum innréttingum og vel skipulagðar.


Bátavogur í Vogahverfi.

 

Silfurtjörn og Gæfutjörn
Því næst var haldið upp í Úlfarsárdal þar sem Bjarg byggir við Silfratjörn 82 leiguíbúðir á fögrum stað við Úlfarsfell og blasir við þeim fellið sem þar búa. Íbúðirnar eru stúdíóíbúðir, 2 herberja upp í 5 herberja íbúðir. Unga kynslóðin sem var að leik í góða veðrinu tók á móti verkalýðsforingjunum og benti þeim á hvar þau byggju og gaman væri að leika sér við Silfratjörn. Fleiri íbúðir við Gæfutjörn eru í byggingu og er áætlað að þær verði afhentar leigjendum í október.

 


Unga kynslóðin benti Drífu Snædal forseta ASÍ að það væri gott að búa við Silfratjörn.

 

Þá var ekið á Selfoss þar sem skoðað var timburhús við Heiðarstekk 1 sem er byggt úr svokölluðum kubbaeiningum sem framleiddar eru hjá SG húsum. Þar mun Bjarg bjóða 28 íbúðir til leigu og áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði afhentar nú í júní og síðar október. 


Heiðarstekkur 1 á Selfossi er timburhús sem byggt er úr kubbaeiningum sem SG hús framleiðir.

 

Bjarg íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd, „Almene boliger“. Leiðarljós félagsins er að veita leigutökum öruggt húsnæði til langs tíma, segir á heimasíðu þess.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)