Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. júní 2021

Ferðaávísun Sameykis með í ferðalagið

Frá Arnarstapa á Snæfellsnesi.

Sameyki býður félagsmönnum sínum að kaupa rafræna ferðaávísun á orlofsvef Sameykis. Félagsmaður ræður fyrir hversu háa upphæð hann kaupir en ferðaávísunin mun gilda á yfir 50 íslenskum hótelum og gistiheimilum. Til að innleysa ávísunina þarf félagsmaður einungis að mæta á hótelið þar sem hann hyggst nýta ferðaávísunina og gefa upp kennitölu sína.

Orlofssjóður niðurgreiðir ferðaávísanir um allt að 30% eða að hámarki 15.000 á almanaksári. Þannig að niðurgreiðsla af 65.000 ferðaávísun er 15.000. Hægt verður að kaupa ferðaávísun fyrir hærri upphæð án þess að niðurgreiðslu njóti við. Einnig er hægt að kaupa ferðaávísun í mörgum atrennum en 30% niðurgreiðsla reiknast þá á hver kaup þar til 15.000 hámarkinu er náð.

Ef handhafi ferðaávísunar vill breyta ferðaáformum sínum, eða ef hótelið er fullbókað þá nótt sem hann hyggst gista, getur hann fyrirhafnarlaust notað ávísunina hjá öðru hóteli. Félagsfólk munu geta skoðað þau tilboð sem hótel og gistiheimili gera þeim hverju sinni á orlofsvef Sameykis. Hægt verður að nota ferðaávísunina til þess að greiða fyrir alla þjónustu á hóteli.

Sameyki gerir þá kröfu til hótelanna að betri tilboð fyrir sömu vöru sé ekki að finna annars staðar og að hótelin bjóði sjóðfélögum sín bestu kjör.

 

Kaupa ferðaávísun Sameykis á orlofsvefnum.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)