Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

28. september 2021

Bjarg íbúðafélag afhenti fimm hundruðustu íbúðina í dag

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, Hjördís Björk Þrastardóttir, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags.

Bjarg íbúðafélag afhenti í dag 500. íbúðina að Gæfutjörn 22 í Úlfarsárdal ungri móður, Hjördísi Björk Þrastardóttur. Íbúðin er 3ja herbergja á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi efst í dalnum með fallegu útsýni til austurs og suðurs. Hjördís Björk var himinlifandi yfir nýju íbúðinni og þótti útsýnið fagurt.

 


Hjördís Björk Þrastardóttir horfir á lyklana af nýju leiguíbúðinni.

 

Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags sagði við þetta tilefni að fyrir tveim árum síðan afhenti íbúðafélagið sína fyrstu íbúð og því er tilefni til að halda upp á þessi tímamót með Hjördísi Björk og gestum. Bjarg íbúðafélag býður leigjendum sínum öryggi á leigumarkaði á hægstæðum leigukjörum. Framundan sé áframhaldandi uppbygging og þessi misserin er íbúðafélagið að afhenda um 23 -30 íbúðir í mánuði.

 


Dagur B. Eggertsson afhenti Hjördísi Björk blómvönd af þessu tilefni.

 

Biðlistar minnka um helming hjá Reykjavíkurborg vegna Bjargs
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Hjördísi Björk blómvönd af þessu tilefni og óskaði henni til hamingju með íbúðina. Borgarstóri sagði þegar Bjarg fór af stað í þessa vegferð hafi borgaryfirvöld bundið miklar vonir við uppbygginguna. „Bjarg íbúðafélag hefur farið fram úr okkar björtustu vonum, því öryggi á leigumarkaðnum hafi skort. Margir bíði eftir að komast í öruggt húsnæði í borginni og því er ég stoltur yfir því að fjögur hundruð íbúðir af þessum fimm hundruð sem afhentar hafa verið eru í Reykjavík, og þetta framboð hafi minnkað biðlista eftir húsnæði um helming.“

 


Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB sagði dásamlegt að afhenda Hjördísi Björk lykla að öruggu húsnæði.

 

Frá hugmynd að heimili
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB tók til máls og lýsti hlýhug sínum yfir þessum gæfudegi hjá Hjördísi Björk að fá 500. leiguíbúðina afhenta hjá Bjargi og fleiri séu í farvatninu. Hún sagði að ungt fólk ætti erfitt með að komast í öruggt leiguhúsnæði hér á landi. „Hér hefur ekki verið neinn alvöru leigumarkaður síðari ár á Íslandi fyrr en nú með komu Bjargs íbúðafélags. Við í verkalýðshreyfingunni vildum breyta þessu, búa til heilbrigðan leigumarkað, og því settumst við niður og spurðum okkur hvernig verkalýðshreyfingin gæti breytt þessari stöðu á leigumarkaðnum. Hvernig við gætum veitt fólki öruggt húsnæði þ.e. að fólk ætti ekki í vændum að húsnæði yrði selt ofan af því, og einnig að húsleigan væri ávallt á hagkvæmu verði. Það sem er svo dásamlegt við að afhenda Hjördísi Björk lyklana hér í dag er að við sjáum þennan draum rætast; sem var í fyrstu hugmynd sem varð að húsi og nú að heimili.“ sagði Sonja Ýr.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)