Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

25. janúar 2022

Opið fyrir umsóknir í Kötlu félagsmannasjóð

Katla félagamannasjóður

Í tilkynningu frá Kötlu félagsmannasjóði er opið fyrir umsóknir þeirra sem hófu störf árið 2021 eða störfuðu hluta úr því ári. Vakin skal athygli á því að þeir sem eiga rétt á úthlutun úr sjóðnum eru þeir sem starfa hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkurborgar.

Aðeins þeir sem hófu störf eða störfuðu hluta úr árinu 2021, (t.d. sumarstörf) og þeir sem ekki sóttu um styrk árið 2020 og voru starfandi árið 2021 þurfa að leggja inn bankareikning, starfshlutfall og starfstíma.

Þeir sem fengu styrk í fyrra fyrir árið 2020 þurfa ekki að endurnýja sína umsókn. Unnið verður með eldri umsóknir.

Hámarks styrkur vegna ársins 2021 er kr. 98.000.- á sjóðsfélaga miðað við fullt starf. Útgreiðsla úr sjóðnum miðast við starfshlutfall og starfstíma viðmiðunarársins sem er starfsárið 2021.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)