Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. apríl 2023

Skrifað undir kjarasamning við Ás styrktarfélag

Samninganefnd Sameykis ásamt viðsemjendum.

Samkomulag um framlengingu og breytingu á kjarasamningi milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Áss styrktarfélags var undirritað upp úr kl. 14 í dag.

Kynningarfundur um kjarasamninginn verður haldinn á Teams mánudaginn 24. apríl kl. 10:00 og þriðjudaginn 25. apríl kl. 17:00. Um leið og fyrri kynningarfundurinn hefst verður opnað fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn og mun kosningin standa yfir til kl. 15 miðvikudaginn 26. apríl. Kosning fer fram með rafrænum hætti inn á Mínum síðum og þar mun félagsfólk einnig geta nálgast samninginn undir Mín kjör.

Tenglar á Teams fundina verða sendir í tölvupósti fyrir næstkomandi helgi á félagsfólk Sameykis hjá Ás styrktarfélagi.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)