Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

29. apríl 2023

Yfirgnæfandi meirihluti samþykkir verkfallsboðun

Þóarinn Eyfjörð, formaður Sameykis.

Yfirgnæfandi meirihluti félaga í fjórum aðildarfélögum BSRB, í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi, samþykkti boðun verkfalls í atkvæðagreiðslu sem lauk nú á hádegi. Fyrstu verkfallsaðgerðir munu hefjast mánudaginn 15. maí, náist samningar ekki fyrir þann tíma.

Í Kópavogi samþykktu 91,83% verkfallsboðun
Í Garðabæ samþykktu 97,26% verkfallsboðun
Á Seltjarnanesi samþykktu 100% verkfallsboðun (Félagsfólk í Sameyki)
Í Mosfellsbæ samþykktu 96,83% verkfallsboðun

Þátttaka var mjög góð í öllum sveitarfélögum eða frá 66% og upp í 86% þátttaka

Atkvæðagreiðslur um verkfall hófust í sex sveitarfélögum til viðbótar á hádegi í gær og lýkur á hádegi næsta fimmtudag. Ef öll félögin kjósa með verkfallsboðun munu verkfallsaðgerðirnar ná til tíu sveitarfélaga þar sem um fimmtán hundruð starfsmenn í leik- og grunnskólum, frístundarmiðstöðvum, mötuneytum og höfnum munu leggja niður störf þar til réttlát niðurstaða fæst.

 


Sonja Ýr Þorbergsdóttir.

 

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagði um niðurstöður atkvæðagreiðslunnar: „Af þessum niðurstöðum að dæma er ljóst að fólkinu okkar er misboðið og það muni ekki sætta sig við þá mismunun sem að Samband íslenskra sveitarfélaga býður upp á.“

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, tekur í sama streng og Sonja Ýr og segir að það sé augljóst að félagsfólk í Sameyki og annarra aðildarfélaga BSRB sé mjög misboðið með þá mismunun sem Samband íslenskra sveitarfélaga vill búa til með þessum hætti.

„Fólk er reitt og skilur ekki að Samband íslenskra sveitarfélaga vilji mismuna starfsfólki með þessum kjaramun og auðvitað er það fráleit ráðstöfun. Sveitarfélögin séu að búa til mikla óreiðu og óánægju. Við vitum líka til þess að stjórnendur innan sveitarfélagana séu mjög óánægð með þessa ákvörðun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga,“ sagði hann um niðurstöður atkvæðagreiðslunnar.

 

Tímasetningar verkfalla
Starfsfólk Kópavogs, Mosfellsbæjar, Garðabæjar og Seltjarnarness mun hefja verkfallsaðgerðir 15. og 16. maí. Starfsfólk Hafnafjarðar, Ölfus, Reykjanesbæjar, Árborgar, Hveragerðis og Vestmanneyja mun bætast í hópinn í vikunni á eftir, fari atkvæðagreiðslur á þann veg, og eru verkföll fyrirhuguð 22., 23., 24. 25. og 26. maí, 5,. 6., 7., 8., og 9. Júní í þessum tíu sveitarfélögum. Náist ekki að semja fyrir þann tíma verða frekari atkvæðagreiðslur boðaðar hjá félögunum og þá verða jafnvel fleiri hópar undir.

 

Verkfall hjá félagsfólki í Grunnskóla Seltjarnarness og Frístund


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)