Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

3. maí 2023

Vorfagnaður Lífeyrisdeildar Sameykis

Mikill gleði verður á vorfagnaði Lífeyrisdeildar Sameykis og boðið verður upp á góðan mat í góðum félagsskap miðvikudaginn 10. maí 2023 kl. 12.00.

Vorfagnaðurinn verður haldinn í Gullhömrum í Grafarholti við Þjóðhildarstíg 2. Boðið verður upp kalkún og lamb ásamt góðu meðlæti af steikarhlaðborði og ljúffengan eftirrétt og kaffi á eftir.

Sóli Hólm, maður hinna mörgu gerfa, mun skemmta okkur og sprella mikið eins og hans er von og vísa og Grímur Sigurðsson ásamt félögum leika fyrir dansi.

Verð 3.500 kr. á mann

Skráning og miðakaup á vorfagnaðinn fer fram í gegnum Orlofshúsavef Sameykis eða á skrifstofu Sameykis í síma. 5258330 / 5258340.

Athugið breyttan opnunartíma á skrifstofu Sameykis frá kl. 9:00 – 15:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 9:00 – 13:00 föstudaga.

Félagsfólk má bjóða einum gesti með á fagnaðinn. Síðasti dagur til að skrá sig er föstudagurinn 5 maí.

Kaupa miða hér

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)